Spænski miðjumaðurinn Xavi Hernandez hefur verið valinn besti leikmaðurinn á nýafstöðnu Evrópumeistaramóti í knattspyrnu.
Hernandez, sem er 28 ára, lék í fimm af sex leikjum Spánar og skoraði í undanúrslitaleiknum gegn Rússlandi.
Að valinu stóðu níu þrautreyndir þjálfarar auk þess sem horft var til kosninga sem fram fóru á netinu.
Hernandez leikur fyrir Barcelona og hefur spilað yfir 60 landsleiki.