„Nei, ævintýrið er ekki úti. Við eigum enn eftir að mæta Evrópu- og heimsmeisturum Þýskalands í úrslitakeppni Evrópumóts og það er ævintýri út af fyrir sig, sagði Sigurður Ragnar Eyjólfsson landsliðsþjálfari Íslands eftir 0:1 ósigurinn gegn Noregi í Lahti í gærkvöld. Úrslitin þýða að Ísland á ekki lengur möguleika á að komast í 8-liða úrslitin á EM í Finnlandi.
Ítarlega umfjöllun, myndir og viðtöl við leikmenn er að finna í Morgunblaðinu í dag.