Alfreð Finnbogason leikmaður U21 árs landsliðsins í knattspyrnu segir að fyrsti leikurinn í Evrópukeppninni sé gríðarlega mikilvægur en Íslendingar mæta Hvít-Rússum í fyrsta leiknum í Árósum á laugardaginn.
„Þetta var ekkert óskaferðalag hingað en við kvörtum ekkert og eru byrjaðir að einbeita okkur að fyrsta leiknum. Það er spenna í hópnum. Sumir eru rólegir en ég er mjög spenntur og hlakka mikið til,“ sagði Alfreð í samtali við mbl.is í Álaborg í dag.