Eyjólfur Sverrisson gerir þrjár breytingar á byrjunarliðinu sem mætir Svisslendingum í Álaborg í dag frá tapleiknum gegn Hvít-Rússum á laugardaginn.
Rúrik Gíslason, Alfreð Finnbogason og Guðmundur Kristjánsson koma inn í liðið fyrir Arnór Smárason, Jóhann Berg Guðmundsson og Aron Einar Gunnarsson sem tekur út leikbann.
Liðið er þannig skipað:
Markvörður: Haraldur Björnsson
Hægri bakvörður: Eggert Gunnþór Jónsson
Vinstri bakvörður: Hjörtur Logi Valgarðsson
Miðverðir: Hólmar Örn Eyjólfsson og Jón Guðni Fjóluson
Tengiliðir: Guðmundur Kristjánsson, Bjarni Þór Viðarsson, fyrirliði og Gylfi Þór Sigurðsson
Hægri kantur: Rúrik Gíslason
Vinstri kantur: Alfreð Finnbogason
Framherji: Kolbeinn Sigþórsson