Spánverjar urðu í kvöld Evrópumeistarar U21 árs landsliða í knattspyrnu í þriðja sinn þegar þeir báru sigurorð af Svisslendingum, 2:0, í úrslitaleik sem háður var í Árósum í Danmörku í kvöld.
Ander Herrera skoraði fyrra markið með skalla á 41. mínútu og Thiago Alcántra innsiglaði sigurinn á 81. mínútu þegar hann skoraði með skoti beint úr aukaspyrnu af lögnu færi. Alcántravar fljótur að átta sig, sá að markvörður Svisslendinga stóð of framarlega og skaut boltanum yfir hann og í netið.
Sigur Spánverja var fyllilega verðskuldaður en Svisslendingar, sem fyrir leikinn höfðu unnið alla fjóra leiki sína á mótinu án þess að fá á sig mark, komust lítt áleiðis gegn firnasterku liði Spánverja sem flestir spáðu titlinum fyrir mótið og fáir geta mótmælt því að þeir voru með besta lið mótsins.
Spánverjar unnu Evrópumeistaratitilinn síðast árið 1998 en fyrst unnu þeir hann árið 1996. Ítalir hafa unnið titilinn oftast allra eða fimm sinnum.