„Að vinna þrjá titla er næstum því ómögulegt,“ sagði kampakátur þjálfari Spánar, Vicente Del Bosque, eftir að Spánn lyfti Evrópumeistarabikarnum í kvöld.
„Ég vil bara óska leikmönnunum til hamingju,“ sagði Del Bosque sem vill nú að liðið haldi áfram að verða betra.
„Ég vildi ekkert endilega vera þjálfarinn sem vinnur heldur þjálfarinn sem kennir. Ég vil undirbúa liðið fyrir framtíðina,“ sagði þjálfari Evrópumeistaranna.