,,Varnarleikurinn í seinni hálfleik bilaði algjörlega hjá okkur og þar fannst mér skilja á milli. Auðvitað vorum við unninn leik. Við vorum fjórum mörkum yfir þegar tæpar fimm mínútur voru eftir en því miður fór allt á versta veg og okkur líður eins og hafa tapað leiknum," sagði Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari við mbl.is. eftir jafnteflið við Serba í kvöld.
,,Við megum ekki dvelja of lengi við þennan leik. Nú þurfum við að skoða þá hluti sem við gerðum ekki rétt og koma ferskir í leikinn á móti Austurríkismönnunum á fimmtudaginn. Við fengum mörg tækifæri til að slíta Serbana frá okkur en við nýttum okkur það ekki og þá fórum við oft illa að ráði okkar manni fleiri,“ sagði Guðmundur.