Íslendingar ráðast ekki á garðinn þar sem hann er lægstur í dag en þá mæta þeir Króötum í fyrsta leik milliriðilsins í íþróttahöllinni í Vín sem var vettvangur úrslitaleiks B-heimsmeistarakeppninnar árið 1992. Króatía og Ísland hefja keppni í milliriðli í tveimur efstu sætunum, Króatar með fjögur stig og Íslendingar með þrjú stig.
Króatar hafa verið í fremstu röð handknattleiksþjóða heims og hafa á að skipa mörgum af bestu handboltamönnum veraldar.
Króatar urðu heimsmeistarar í Portúgal árið 2003 og þrívegis hafa þeir lent í öðru sæti, 1995 á Íslandi, í Túnis 2005 og á heimavelli í fyrra þar sem Frakkar höfðu betur gegn þeim í úrslitaleik. Króatar urðu Ólympíumeistarar í Atlanta árið 1996 og endurtóku leikinn í Aþenu 2004. Þeim hefur hins vegar ekki tekist að hampa Evrópumeistaratitlinum. Besti árangur þeirra á EM er annað sætið en Króatar biðu lægri hlut fyrir Dönum í úrslitaleik í Ósló í Noregi fyrir tveimur árum.
Sjá nánar ítarlega umfjöllun um Króata og um frammistöðu landsliðsins á Evrópumótinu í Austurríki í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.