Engin breyting verður á íslenska landsliðshópnum fyrir undanúrslitin á EM sem hefjast á morgun en heimilt var að skipta út tveimur leikmönnum eftir milliriðlana.
,,Það er engin ástæða til að gera breytingar. Við spiluðum á þeim mönnum sem eru til staðar. Við trúum á og treystum þessum mönnum,“ sagði Guðmundur þórður Guðmundsson landsdliðsþjálfari við mbl.is rétt áður en hann kallaði sína menn til liðsfundar þar sem Frakkar áttu að vera krufðir til mergjar.
Íslendingar mæta Frökkum í undanúrslitunum á morgun og hefst leikur þjóðanna klukkan 13 að íslenskum tíma.