,,Það var sorglegt að staðan skyldi ekki vera betri fyrir okkur eftir fyrri hálfleikinn. Við afhentum þeim boltann á silfurfati í ein fjögur skipti og Frakkarnir refsuðu okkur grimmt með hraðaupphlaupum. Byrjunin í seinni hálfleik var hræðileg. Við fengum á okkur átta mörk en gegn þremur og þar með sigldu Frakkarnir frammúr," sagði Guðmundur Þórður Guðmundsson þjálfari íslenska landsliðsins við mbl.is.
,,Ég veit ekki hvort menn hafi verið of fljótir að gefast upp en strákarnir byrjuðu seinni hálfleikinn óvenju dauft og það voru mikil vonbrigði.“
Aron Pálmarsson átti frábæra innkomu í fyrri hálfleik og skoraði 6 mörk á síðasta korterinu. Hvers vegna var hann ekki látinn hefja seinni hálfleikinn?
,,Um daginn létum við hann byrja seinni hálfleikinn og það gekk ekki. Nú hugsuðum við að láta hann koma inná eftir 6-7 mínútur. Það er auðvelt að segja eftir á, hefðum við átt að gera eitthvað annað? Það veit enginn og ómögulegt að velta sér upp úr því. Ég treysti þeim mönnum sem eru inná í hvert skipti.“
,,Ég var nokkuð sáttur við varnarleikinn og markvörsluna en það sem ég var óánægður með voru hlaupin til baka og hraðaupphlaupin.“
,,Við höfum áður lent í áföllum í keppninni og höfum rifið okkur upp úr þeim. Ég er sannfærður um að menn mæti grimmir á morgun. Það er mikill munur á þriðja og fjórða sætinu og við stefnum svo sannarlega á sigur.“