Rúnar valinn bestur í íslenska liðinu

Guðmundur Guðmundsson ræðir við sína menn í leiknum gegn Spánverjum …
Guðmundur Guðmundsson ræðir við sína menn í leiknum gegn Spánverjum í dag. Reuters

Rúnar Kárason var útnefndur besti leikmaður íslenska landsliðsins í tapleiknum gegn Spánverjum á Evrópumótinu í Serbíu í dag. Rúnar átti fína innkomu í skyttustöðuna hægra megin. Hann skoraði fjögur mörk í leiknum og var ógnandi í sóknarleik íslenska liðsins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert