Úrslitaleikurinn við Þjóðverja í dag

Adolf Ingi setur sig í stellingar fyrir leikinn.
Adolf Ingi setur sig í stellingar fyrir leikinn. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lýsing á úrslitaleik Íslendinga og Þjóðverja sem sýndur verður klukkan 17:00 í dag á SkjáSport verður í höndum Adolf Inga Erlingssonar eins og í fyrri leikjunum á mótinu.

Ísland er með fullt hús stiga eftir sigur á Austurríki og Rússum en mótið er hluti af undirbúningi fyrir undankeppni EM í Danmörku sem hefst 10. janúar næstkomandi.

Fyrri leikur dagsins er leikur Austurríkis og Rússlands klukkan 14:30. Allir leikirnir eru í opinni dagskrá.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka