Aron Kristjánsson, landsliðsþjálfari Íslands, hefur ákveðið að hafa Ólaf Guðmundsson utan leikmannahópsins á morgun gegn Noregi í fyrsta leiknum á Evrópumótinu í handbolta í Danmörku.
Tilkynna þurfti 16 leikmenn fyrir fyrsta leik og verður Ólafur 17. maður landsliðsins og þarf af leiðandi utan hóps fyrst um sinn, en heimilt er að skipta leikmanni inn þrisvar sinnum í keppninni.