Góður stuðningur dugði ekki - myndir

Frábær stuðningur nokkuð hundruð Íslendinga á áhorfendapöllunum í Spodek íþróttahöllinni í Katowice dugði íslenska landsliðinu ekki í dag í hörkuleik gegn Hvít-Rússum. Íslendingarnir létu vel í sér heyra allt frá upphafi til enda og tóku hressilega undir þegar þjóðsöngurinn var leikinn áður en flautað var til leiks. 

Eftir leikinn í dag fækkar í stuðningsmannaliði Íslands þar sem hópurinn sem fór út á föstudaginn heldur heim í kvöld. Eftir verða samt um hundrað Íslendingar sem verða að hafa sig alla við þegar Króatar mæta í Spodek íþróttahöllina á þriðjudaginn. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert