„Við ætluðum ekki að vera í þessari stöðu eftir leik,“ sagði Aron Pálmarsson, landsliðsmaður í handknattleik, eftir að Ísland tapaði fyrir Serbíu 29:26 í lokaleik sínum í A-riðli Evrópumótsins í Króatíu.
Ísland þarf nú að bíða örlaga sinna. Ef Svíþjóð nær jafntefli eða sigri gegn Króatíu í síðari leik riðilsins í kvöld þá er Ísland úr leik.
„Það er þreytandi að þurfa að treysta á aðra. Við ætluðum okkur sigur í þessum leik og vorum með þá. Köstum þessu fáránlega frá okkur undir lokin og gefum þeim þennan sigur,“ sagði Aron í beinni útsendingu við RÚV.
En hvað fór úrskeiðis undir lokin?
„Við töpuðum of mörgum boltum og það var lítil markvarsla. Þetta var mjög erfitt í seinni hálfleik og því fór þetta svona. Nú er að treysta á Króata að gera sitt,“ sagði Aron Pálmarsson.