Salami til reynslu hjá Chelsea

Jose Mourinho knattspyrnustjóri Chelsea ætlar að skoða ungan Nígeríumann.
Jose Mourinho knattspyrnustjóri Chelsea ætlar að skoða ungan Nígeríumann. Reuters

Adigun Salami 18 ára gamall knattspyrnumaður frá Nígeríu verður til reynslu hjá Englandsmeisturum Chelsea síðar í mánuðinum en hann hefur vakið mikla athygli fyrir frammistöðu sína með danska liðinu Midtjylland. Salami er miðjumaður en fyrir hjá Chelsea er einn Nígeríumaður, John Obi Mikel, sem eftir mikið stapp kom til Chelsea frá norska liðinu Lyn eftir stutta viðkomu hjá Manchester United.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert