Eggert Magnússon nýr eigandi West Ham United fékk hlýjar mótttökur á Upton Park fyrir leik liðsins gegn Sheffield United. Eggert var kallaður inn á völlinn rétt fyrir leikinn þar sem hann var hylltur af stuðningsmönnum félagsins. Leikurinn í dag er sá fyrsti sem liðið spilar frá því Íslendingar, með Eggert Magnússon í broddi fylkingar, keyptu meirihlutann í því.