Jose Mourinho knattspyrnustjóri Chelsea var vitanlega ekki ánægður með úrslit sinna manna gegn Aston Villa í kvöld. Markalaust jafntefli varð niðurstaðan og þriðja jafntefli Chelsea í röð staðreynd. Chelsea er með 48 stig í öðru sæti, er sex stigum á eftir Manchester United en átta stigum á undan Liverpool sem er í þriðja sæti.
,,Að vera sex stigum á eftir Manchester United eftir þennan ömurlega kafla er ekki svo slæmt. Við höldum í væntingar og að seinni hlutinn verði betri hjá okkur. Við erum á lífi og stigið hér í kvöld var þýðingarmikið þó svo að ég hefði að sjálfsögðu viljað fá sigur," sagði Mourinho.