Ole Gunnar Solskjær skaut Manchester United áfram í fjórðu umferðina í ensku bikarkeppninni þegar United lagði Aston Villa, 2:1, á Old Trafford. Solskjær kom inná sem varamaður í síðari hálfleik og skoraði sigurmarkið á lokamínútum leiksins. Markið verður að skrifast á Gabor Kiraly markvörð Villa en hann missti undir sig fast skot Solskjærs. Fyrra mark United skoraði Henrik Larsson í sínum fyrsta leik en Milan Baros jafnaði metin fyrir Villa 20 mínútum fyrir leikslok.