Ronaldo aftur leikmaður mánaðarins

Cristiano Ronaldo fór á kostum með Manchester United í desember.
Cristiano Ronaldo fór á kostum með Manchester United í desember. Reuters

Cristiano Ronaldo, portúgalski knattspyrnumaðurinn hjá Manchester United, var í dag útnefndur leikmaður desembermánaðar í ensku úrvalsdeildinni. Ronaldo var líka valinn leikmaður nóvembermánaðar og er aðeins þriðji leikmaðurinn í sögu úrvalsdeildarinnar sem hlýtur þessa viðurkenningu tvo mánuði í röð. Robbie Fowler hjá Liverpool var sá fyrsti, um áramótin 1995-1996, og síðan Dennis Bergkamp hjá Arsenal haustið 1997.

Ronaldo lék frábærlega með United í desembermánuði og skoraði þá sjö mörk í sex deildaleikjum, þar af þrívegis tvö mörk í leik.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert