Liverpool var að komast í 2:0 gegn Englandsmeisturum Chelsea á Anfield. Jeremaine Pennant skoraði markið á 18. mínútu með glæsilegu skoti rétt utan teigs sem Petr Cech réð ekki við. Þetta er fyrsta mark Pennants í úrvalsdeildinni á leiktíðinni. Rétt eftir markið gerði Chelsea skiptingu. Arjen Robben meiddist og þurfti að fara útaf og kom Shaun Wright-Phillips inná fyrir hann.