Chelsea komnir í úrslit deildabikarsins

Andriy Shevchenko skorar annað mark sitt gegn Wycombe í kvöld.
Andriy Shevchenko skorar annað mark sitt gegn Wycombe í kvöld. Reuters

Chelsea tryggði sér í kvöld sæti í úrslitum enska deildabikarsins með auðveldum sigri á Wycombe, 4-0. Fyrri leik liðanna í lauk með 1-1 jafntefli og sigraði Chelsea því samanlegt 5-1. Það var Andriy Shevchenko sem skoraði bæði mörk Chelsea í fyrri hálfleik og Frank Lampard bætti svo tveimur mörkum við í síðari hálfleik.

Chelsea mætir annað hvort Arsenal eða Tottenham í úrslitaleiknum, en þau mætast annað kvöld kl. 20.00 á White Hart Lane.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert