Robbie Savage miðjumaðurinn harðskeytti í liði Blackburn fótbrotnaði í leik Blackburn gegn Watford í gærkvöldi og verður frá keppni næstu vikurnar. Þar með hafa tveir leikmenn liðsins fótbrotnað á skömmum tíma en hollenski varnarmaðurinn Andre Ooijer brotnaði í leik Blackburn og Manchester City á laugardagskvöldið.
Savage var borinn útaf í seinni hálfleik eftir viðskipti við Al Bangoura og myndataka á sjúkrahúsi leiddi í ljós að um fótbrot var að ræða. ,,Þetta er mikið áfall fyrir okkur," sagði Mark Hughes knattspyrnustjóri Blackburn enda Savage einn af lykilmönnum liðsins og afar þýðingarmikill fyrir liðið.