">
Jeremie Aliadiere er ekki á leiðinni frá Arsenal segir Arsene Wenger stjóri Arsenal. Aliadiere hefur ekki átt fast sæti í liði Arsenal en Wenger segir ekki komi til greina að láta leikmanninn fara frá liðinu í janúar, en Robin Van Persie mun ekki spila næstu 10 vikurnar.
"Ég vil ekki láta hann fara og held að þetta sé gott tækifæri fyrir hann og Julio Babtista til þess að sýna hvað í þeim býr. Ég trúi því að Aliadiere eigi eftir að skora nokkur mörk áður en tímabilið er á enda," sagði Wenger.
Aliadiere er 23 ára og hefur leikið með Arsenal frá árinu 2001, alls 38 leiki og skorað í þeim 8 mörk.