Ben Foster, sem leikið hefur sem lánsmaður hjá Watford á þessu tímabili, verður næsti markvörður enska landsliðsins að sögn Alex Ferguson. Foster er leikmaður United, en hefur vakið mikla athygli í marki Watford í vetur. "Foster verður næsti markvörður Englands og það mjög fljótlega," sagði Ferguson. Hann bætti því jafnframt við að hann muni spila fyrir United á næsta tímabili.