Bellamy fær þunga sekt

Craig Bellamy hinn óstýrláti leikmaður Liverpool.
Craig Bellamy hinn óstýrláti leikmaður Liverpool. Reuters

Breskir fjölmiðlar greina frá því í dag að Liverpool muni sekta Craig Bellamy um 80,000 pund, 10,5 milljónir íslenskra króna, vegna atviksins sem átti sér stað í æfingabúðum félagsins í Portúgal. Bellamy réðst á John Arne Riise á hótelinu sem liðið dvelur á og barði hann með golfkylfu.

Nær öruggt þykir að Liverpool losi sig við Bellamy í sumar sem hefur oftar en ekki verið til vandræða utan vallar og hefur margoft komist í kast við lögin.

Liverpool mætir Evrópumeisturum Barcelona í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar á Nývangi á miðvikudaginn og verður fróðlegt að sjá hvort þessi uppákoma í Portúgal verði til þess að stappa stálinu í liðmenn Liverpool sem töpuðu síðasta leik sínum gegn Newcastle í úrvalsdeildinni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert