Bresk blöð greina frá því dag að Rafael Benítez knattspyrnustjóri hafi sektað 15 leikmenn liðsins fyrir að brjóta agareglur í æfingaferð félagsins til Portúgals í síðustu viku. Craig Bellamy og John Arne Riise, sem gengu lengst í drykkjulátum leikmanna liðsins, þurfa að greiða þyngstu sektirnar. Bellay sem samsvarar 10,5 milljónum króna og John Arne Riise 8 milljónum en sekt annara er lægri.
Nær öruggt þykir að Liverpool losi sig við Bellamy við fyrsta tækifæri og að sögn breskra fjölmiðla hafa Blackburn og Aston Villa sýnt áhuga á að fá þessan óstýrláta welska framherja til liðs við sig.