PSV Eindhoven sigraði Arsenal, 1:0, í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu sem fram fór í Hollandi í kvöld. Edison Mendez skoraði sigurmark hollenska liðsins á 61. mínútu og PSV stendur því ágætlega að vígi fyrir seinni leikinn sem fram fer í London.