Tottenham mætir Braga í UEFA-bikarnum

Martin Jol knattspyrnustjóri Tottenham stýrir sínum mönnum gegn Braga í …
Martin Jol knattspyrnustjóri Tottenham stýrir sínum mönnum gegn Braga í næstu umferð UEFA-bikarsins. Reuters

Tottenham Hotspur komst beint í 16-liða úrslitin í UEFA-bikarnum í knattspyrnu þar sem mótherjar liðsins, Feyenoord frá Hollandi, voru dæmdir úr keppni vegna óláta stuðningsmanna sinna. Í kvöld varð ljóst að andstæðingar Tottenham verða Braga frá Portúgal sem vann Parma frá Ítalíu 1:0 á útivelli og þar með 2:0 samanlagt. Diego skoraði mark Braga einni mínútu fyrir leikslok.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert