Keane með tvö mörk og rautt spjald

Robbie Keane fagnar fyrra marki sínu fyrir Tottenham í dag.
Robbie Keane fagnar fyrra marki sínu fyrir Tottenham í dag. Reuters

Tottenham sigraði Bolton, 4:1, í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Robbie Keane skoraði tvö mörk fyrir Tottenham og Jermaine Jenas eitt á fyrstu 22 mínútum leiksins. Keane fékk síðan rauða spjaldið á 35. mínútu og tveimur mínútum síðar skoraði Gary Speed fyrir Bolton úr vítaspyrnu, 3:1. Aaron Lennon bætti við fjórða marki Tottenham á lokamínútunni.

Blackburn sigraði Portsmouth örugglega, 3:0. Shabani Nonda skoraði tvívegis snemma leiks, á fyrstu og 25. mínútu, og Steve Warnock bætti þriðja markinu við á 50. mínútu. Nonda gat síðan náð þrennunni en tókst ekki að skora úr vítaspyrnu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert