Manchester United var að tryggja sér farseðilinn í 8-liða úrslit ensku bikarkeppninnar með 3:2 sigri á Reading á Madejski Stadium, heimavelli Reading í kvöld.
United komst í 3:0 á fyrstu 6 mínútum leiksins með mörkum frá Gabriel Heinze, Louis Saha og Ola Gunnari Solskjær. Dave Kitson minnkaði muninn á 23. mínútu og þegar tæpar 10 mínútur voru eftir minnkaði Leroy Lita muninn. Reading sótti stanslaust á lokamínútunum og var Brynjar Björn hársbreidd frá því að jafna en þrumufleygur hans small í slánni. Brynjar og Ívar Ingimarsson léku báðir allan tímann.