Blackburn hrósaði 2:1 sigri á grönnum sínum í Bolton sem áttust við á Reebok vellinum í Bolton í dag. S-Afríkumaðurinn Benni McCarthy kom Blackburn í 2:0 með mörkum úr vítaspyrnum en Frakkinn Nicolas Anelka minnkaði muninn fyrir Bolton fimm mínútum fyrir leikslok.
Blackburn fór með sigrinum upp í 9. sætið en liðið hefur 40 stig en Bolton situr áfram í 5. sætinu með 47 stig, fimm stigum á eftir Arsenal.