Manchester United hefur óskað eftir því við bresku ríkisstjórnina að hún rannsaki atburðinn í Rom í gær en á annan tug stuðningsmanna Manchester United slösuðust og voru fluttir á sjúkrahús eftir óeirðirsem áttu sér stað fyrir og á meðan leik Roma og Manchester United stóð í Meistaradeildinni á ólympíuleikvangnum í Rom.
Manchester United telur að ítalska lögreglan hafi farið yfir strikið en fjöldi stuðningsmanna félagsins hefur kvartað yfir því að lögreglan hafi barið þá og lamið án tilefnis.