Manchester United náði í kvöld sex stiga forystu í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu með því að sigra Sheffield United, 2:0, á Old Trafford. United er með 81 stig og á fimm leiki eftir en Chelsea á leik til góða, mætir West Ham á Upton Park annað kvöld, og er með 75 stig.
Michael Carrick skoraði fyrir United strax á 4. mínútu í kvöld og Wayne Rooney bætti öðru marki við á 50. mínútu.
Sheffield United er áfram í 17. sæti deildarinnar með 34 stig, tveimur stigum á undan Charlton, en liðin mætast á The Valley, heimavelli Charlton, um næstu helgi.