Frank Lampard segir í viðtali við spænska íþróttablaðið Sport að Eiður Smári Guðjohnsen geti ekki hætt að tala við sig að um þá kosti að spila fyrir Barcelona og hvetur hann til að koma en líkt og á síðasta ári er Lampard sterklega orðaður við spænska meistaraliðið sem Eiður Smári gekk til liðs við frá Chelsea í fyrrasumar.
,,Hann talar dásamlega um Barcelona," segir Lampard við Sport. ,,Ég hef rætt oft við hann og hann er yfir sig ánægður með lífið og lífstílinn í Barcelona. Ég held að það sé mikil reynsla fyrir knattspyrnumann að spila með liði eins og Barcelona. Eiður segir að það sé mikill munur á æfingunum hjá Barcelona og Chelsea sem felst aðallega í því að hjá Barcelona er meira um tækniæfingar frekar en úthaldsþjálfun og það kann hann að meta enda afar hæfileikaríkur leikmaður," segir Lampard sem hefur ekki skrifað undir nýjan samning við Chelsea.