David Moyes kærir Wayne Rooney

David Moyes hyggst draga Wayne Rooney fyrir dómstóla.
David Moyes hyggst draga Wayne Rooney fyrir dómstóla. Reuters

David Moyes, knattspyrnustjóri Everton, hefur kært Wayne Rooney, leikmann Manchester United og enska landsliðsins, fyrir ummæli um sig sem birtust í bókinni "My Story So Far", eða "Saga mín hingað til." Frásögn Rooneys af tildrögum þess að hann yfirgaf Everton á sínum tíma eru Moyes ekki að skapi.

Moyes segir að ummæli í bókinni séu meiðandi fyrir sig persónulega og fyrir starfsheiður sinn, og hafi valdið sér miklum áhyggjum.

Kæran beinist að Rooney, höfundi bókarinnar Hunter Davies og útgáfufyrirtækinu Harper Collins.

Rooney hóf feril sinn með aðalliði Everton 16 ára gamall haustið 2002 og var seldur til Manchester United í ágúst 2004.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert