Manchester United tapaði tveimur dýrmætum stigum í baráttunni um enska meistaratitilinn í knattspyrnu í dag þegar liðið gerði aðeins jafntefli, 1:1, við Middlesbrough á heimavelli sínum, Old Trafford. United er nú með 82 stig en Chelsea er með 78 stig og getur minnkað forskotið í eitt stig á morgun en þá sækir Chelsea lið Newcastle heim.
Kieran Richardson skoraði fyrir United strax á 3. mínútu en Mark Viduka jafnaði metin með skallamarki á síðustu mínútu fyrri hálfleiksins. Alex Ferguson knattspyrnustjóri United brást við því með því að leika með þriggja manna vörn allan síðari hálfleikinn en það dugði ekki til og jafntefli varð niðurstaðan.