Chelsea lagði Liverpool, 1:0, í fyrri rimmu liðanna í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í knattspyrnu á Stamford Bridge í kvöld. Sigurmarkið skoraði Joe Cole á 29. mínútu en Didier Drogba var arkitektinn af því.
Síðari leikur liðanna verður á Anfield á þriðjudag en fyrir tveimur árum sló Liverpool lið Chelsea út í undanúrslitunum með því að vinna 1:0 sigur á heimvelli eftir að þau höfðu gert markalaust jafntefli á Stamford Bridge.