Manchester United getur tryggt sér Englandsmeistaratitilinn um næstu helgi. Fari svo að United leggi granna sína í Manchester City að velli á Manchester Stadium og Chelsea nær ekki að sigra Arsenal á Emirates eru úrslitin ráðin. Tapi bæði United og Chelsea eða gera jafntefli eru úrslitin einnig ráðin.
Manchester United á eftir mæta Manchester City og Chelsea á útivelli og West Ham á heimavelli en Chelsea á eftir að mæta Arsenal á útivelli og Manchester United og Everton á heimavelli.