Daniel Agger hefur komið Liverpool yfir gegn Chelsea, 1:0, á 22. mínútu í síðari undanúrslitaleik liðanna í Meistaradeild Evrópu sem nú stendur yfir á Anfield. Agger skoraði markið eftir að Steven Gerrard renndi boltanum á hann úr aukaspyrnu viið vítateiginn. Staðan er þá jöfn samanlagt, 1:1, og allt galopið.