Staðfest var í dag að Gary Neville, fyrirliði Manchester United, yrði ekki með liðinu í úrslitaleik ensku bikarkeppninnar í knattspyrnu á laugardaginn kemur. Hann gekkst undir aðgerð á ökkla í gær og verður þar af leiðandi ekki með enska landsliðinu þegar það mætir Brasilíu og Eistlandi í byrjun júní.
Neville hefur verið frá keppni frá því um miðjan mars vegna meiðslanna en vonast hafði verið til að hann næði úrslitaleiknum.
Ryan Giggs verður að öllu óbreyttu fyrirliði United í stað Nevilles og leiðir því lið sitt inná hinn nýja og endurbætta Wembley-leikvang.