Sidwell samþykkir að fara til Chelsea

Steve Sidwell er á leið frá Reading til Chelsea.
Steve Sidwell er á leið frá Reading til Chelsea. AP

Steve Sidwell miðjumaður í liði Reading hefur samþykkt að ganga til liðs við bikarmeistara Chelsea. Samningur hans við Reading rennur út þann 1. júlí og eftir það fer hann til Chelsea á frjálsri sölu.

Sidwell er 24 ára gamall og var lykilmaður í liði Reading á leiktíðinni en hann vildi ekki framlengja samning við félagið sem bauð honum 25,000 pund í vikulaun. Hann er fyrsti leikmaðurinn sem Jose Mourinho knattspyrnustjóri Chelsea fær til liðs við sig í sumar en þar á bæ á ekki að kaupa neinar stórstjörnur líkt og fyrir síðustu leiktíð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert