Fabio Capello þjálfari Real Madrid segir að David Beckham eigi fyllilega skilið að verða valinn í enska landsliðið á nýjan leik en Steve McClaren landsliðsþjálfari tilkynnir á morgun landsliðshóp sinn sem mætir Brasilíumönnum í vináttuleik í næstu viku og Eistum í undankeppni EM.
,,Ég held að Beckham hafi ekki verið í betra formi í tvö ár og hann er sammála mér um það. Ég hef sagt honum að ég skilji ekki að einhver sem spilar svona vel sé settur út í kuldann í landsliðinu," segir Capello.
Beckham hefur ekki leikið með enska landsliðinu undir stjórn McClarens en hann lét vera sitt fyrsta verk þegar hann tók við liðinu eftir HM að sparka fyrrum landsliðsfyrirliðanum út úr hópnum. Miklar vangaveltur eru í gangi að McClaren muni velja Beckham í hópinn en hann hefur ekkert viljað gefa út á þær vangaveltur.