Viduka á leið til Newcastle

Mark Viduka leikur væntanlega með Newcastle næsta vetur.
Mark Viduka leikur væntanlega með Newcastle næsta vetur. Reuters

Mark Viduka, ástralski sóknarmaðurinn, er á leiðinni frá Middlesbrough til grannliðsins Newcastle, að sögn enskra fjölmiðla í morgun. Ekki hefur verið gengið frá neinu en Sky Sports kveðsts hafa öruggar heimildir fyrir því að Viduka hafi samþykkt að ganga til liðs við Newcastle. Þó er Birmingham sagt hafa komið inní málið á síðustu stundu með tilboð til handa þessum 31 árs gamla knattspyrnumanni.

Viduka hefur ítrekað hafnað því að skrifa undir nýjan samning við Middlesbrough. Hann er á ferð með landsliði Ástralíu þessa dagana svo ólíklegt er að gengið verði frá vistaskiptum hans alveg á næstunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert