West Ham og Newcastle ræða við Barton

Joey Barton ræðir við Newcastle í dag.
Joey Barton ræðir við Newcastle í dag. Reuters

West Ham og Newcastle hafa bæði fengið leyfi frá Manchester City til að ræða um kaup og kjör við enska landsliðsmanninn Joey Barton. Hann er á förum frá City fyrir 5,5 milljónir punda, í kjölfarið á því að hann réðst á samherja sinn, Ousmane Dabo, á æfingu liðsins í vor. BBC segir að bæði Newcastle og West Ham hafi samþykkt að greiða umrædda upphæð.

Barton fer í dag til Newcastle og hittir þar Sam Allardyce, nýráðinn knattspyrnustjóra félagsins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert