Heiðar Helguson, knattspyrnumaður hjá Fulham, hefur ákveðið að gefa ekki oftar kost á sér í íslenska landsliðið. Í samtali við Morgunblaðið segist Heiðar verða að draga úr álagi. Hann kveðst kveðja landsliðið með söknuði og styðja heilshugar við bakið á Eyjólfi Sverrissyni landsliðsþjálfara þrátt fyrir brösótt gengi. Heiðar hefur ekki leikið með landsliðinu síðan í september.