Ekkert tilboð frá Liverpool í Torres

Fernando Torres framherji Atletico Madrid.
Fernando Torres framherji Atletico Madrid. AP

Forráðamenn spænska liðsins Atletico Madrid neita fregnum um að þeim hafi borist tilboð frá Liverpool í spænska landsliðsmiðherjann Fernando Torres. Liverpool er sagt reiðubúið að punga út 25 milljónum punda í Torres eða sem svarar 3,2 milljörðum íslenskra króna.

,,Við höfum ekki fengið neitt tilboð í Torres né frá öðrum liðum. Torres er í sumarfríi verður mættur til æfinga hjá okkur þann 9. júlí," sagði Enrique Cerezo forseti Madridarliðsins í dag.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert