Ívar Ingimarsson, landsliðsmiðvörður í knattspyrnu, skrifaði í morgun undir nýjan samning við enska úrvalsdeildarliðið Reading sem gildir til vorsins 2010. Fyrri samningur Ívars átti að renna út einu ári fyrr.
„Ívar átti frábært tímabil með okkur og verðskuldaði fyllilega að vera kosinn leikmaður ársins hjá okkur," sagði Nicky Hammond, yfirmaður knattspyrnumála hjá Reading, á vef félagsins í morgun. Um leið var tilkynnt að samningar við James Harper og Shane Long hefðu verið framlengdir til 2010 og 2011.