Manchester City hefur boðað til blaðamannafundar klukkan 14 í dag þar sem tilkynnt verður um ráðningu á Svíanum Sven Göran Eriksson í starf knattspyrnustjóra hjá félaginu. Ráðning Erikssons hefur legið í loftinu en ekki hefur verið unnt að ganga frá henni fyrr en Thaksin Shinawatra eignaðist 75% hlut í félaginu en það átti sér stað í morgun.