Liverpool hefur náð samkomulagi við West Ham um kaupverðið á ísraelska landsliðsmanninum Yossi Benayoun að sögn umboðsmanns leikmannsins. Að því er fréttavefur BBC greinir frá er kaupverðið 4 milljónir punda, 490 milljónir króna, og verður gengið endanlega frá félagaskiptunum á morgun.
Benayoun er 25 ára gamall og fyrirliði ísraelska landsliðsins. Hann gekk í raðir West Ham frá spænska liðinu Racing Santander árið 2005. Ísraelinn lék 72 leiki fyrir West Ham og skoraði í þeim 8 mörk.